jújú..... ég sit núna í skólanum á þingvallastræti á Alureyri... er í fagi sem heitir ..... uhhh man það ekki alveg en það er allavega um tónlist og allt tengt því.... rosa gaman eru að læra aðeins að syngja og svoleiðis í leiðinni mjög gaman segi ekki annað. annars er lítið að að frétta.... er bara búin að vera hérna á Akureyri síðan á miðvikudagskvöld voða gaman.... erum í staðarlotu.. í alveg rosalega skemmtilegum fögum, þessu tónlilstafagi og svo í lista fagi þar sem við sátum í gær og máluðum og teiknuðum. Já ég var að teikna og mála það gerist nú ekki oft... en gerist og var alveg geðveikt gaman. Get bara ekki sagt annað. og listaverkið hangir bara niðrí í kjallara í skólanum til sínis en þetta var geggjað gaman orðin alveg svört á puttunum og út ötuð í málingu.... hitti svo Bigga í gærkvöldi..... fór í keilu og hitti hann og vin hans þar.... tók einn leik með þeim og kítkum svo rúnt og aðeins inn á Amor.... og jeminn eini... það var skelfilegt! kíktum á dansgólfið og þar voru tvær mjög ungar skvísur að missa sig á tómu dansgólfinu... var mjög fyndið En hvað er svo málið að hafa skóla klukkan 8 á laugardagsmorgni?? úff væri alveg til í að vera sofandi segi nú ekki annað... en þar sem lífsmarkið er ekki mikið hjá mér þá er ég að spá í að hætta að bulla í bili og reyna að vakna til lífsins.... HASTALA VISTA
24. janúar 2009 klukkan 10:40
Sigurbjörg Þórunn 1 athugasemd
jæja árið farið af stað og allt bara svona ljómandi skemmtilegt ég bý hér um bil uppi í hesthúsi ætla að nota tímann VEL næstu dagana... meðan ég get.. Er á fullu á Eld núna þessa dagana... mjög gaman.. engin smá breyting á einum hesti. er búin að vera mikið á honum bara inni á gangi en fór svo í gær og fékk að fara inn í skemmu hjá Dóra og það gekk bara svona ljómandi vel svon gaman þegar hlutir koma manni svona á óvart... fór í dag að smala í Galtanesi, smá hestastúss er alltaf skemmtilegt.... fínt veður svolítið kalt en æðislegt að vera úti í kringum þessa snillinga. Hitti Amor aðeins... ohh hvað ég verð flott eftir 2 ár þegar ég kem ríðandi á honum.... úff hehehe en hann er allavega bara geggjaður, svo líka orðinn svo gæfur sem kemur mikið á óvart þar sem hann var stökkvandi á milli dilka í stóðréttinni í haust... hehehe en hann lofar góðu.. Svo fórum við upp í hesthús og ég skellti mér bara út í gerði á Eld bara gaman.... ohh þetta er svo mikil snilld... fljótlega verður það bara reiðtúr með einhverjum skemmtilegum og rólegum spurning hvar ég finn einhvern svoleiðis en það hlýtur að koma hehe.... annars er bara lítið um að vera... skólinn byrjaður.... verð að fara að vera dugleg þar ekki veitir af.... þið á akureyri... ég kem í heimsókn í lok jan og svo aftur í feb go svo aftur í mars hlakka til að hitta einhverja af ykkur allavega.. veit ekki hvað ég kemst yfir margar heimsóknir en reyni mitt besta.... en ætli það sé ekki best að fara að athuga með glósur fyrir morgun daginn.... hafið það sem allra best Hastala vista
11. janúar 2009 klukkan 20:43
Sigurbjörg Þórunn 2 athugasemdir
Gleðilegt ár allir og takk fyrir það gamla. Þið sem ég skemmti mér með í hestaferðum og á landsmóti í sumar TAKK æðislega fyrir geðveika tíma. árið 2009 leggst bara nokkuð vel í mig. Nei eiginlega bara betur heldur en nokkuð.. það leggst bara mjög vel í mig... þetta verður skemmtilegr ár er ég viss um... nú þegar eru ýmsir spennandi hlutir sem bíða mín þannig ég hlakka bara til..... ekki spurning! okey kvíði smá fyrir líka en það er bara gott. Árið 2008 var ágætis ár..... kannski ekki alveg mitt ár en fínt samt sem áður já spennandi hlutir framundan ... úff skulum bara ekkert tala um þá... þetta verður allavega gaman! Æskulýðsnefdin komin á fullt og leggst það bara vel í mig nýtt ár ný börn ný atriði ný tónlist ohh þetta er svo skemmtilegt... jú okey hinir sem voru með í fyrra verða vonandi með aftur líka jú svo eitt merkilegt! eða nei ykkur finnst það örugglega ekkert merkilegt en ég er allavega mjög ánægð og stolt af mér. En á gamlársdag rættist draumur síðan jólin 2003. þá fór ég sem sagt á klárinn minn hann Eld í fyrsta skiptið, en é gfékk hann í útskriftargjöf jólin 2003 sem folald. Vá ég var svo ánægð. Loksins búin að fara á hann og þetta eina skipti myndi örugglega duga mér..... ehhhhhhh eni kannski ekki, ekki víst hann var svona stilltur nei ég ætla nú helst að fara á hann aftur á morgun. já ykkur finnst þetta kannski ekkert merkilegt en ég er búin að bíða eftir þessu lengi þannig það kom loksins að þessu. annars fór ég suður í morgun (3.jan) pabbi gamli á afmæli á morgun (4.jan) og það var rokkna veisla (nei bara svona nánasta) en það var allavega mikill matur og allskonar góðgæti...sv o var bara brunað aftur heim... yndislegt. Innilega til hamingju með daginn pabbi.... eigðu góðan dag!!!!
en já ég fór suður..... og gerði þá eindæmis vitleysu að láta mér detta það í hug að fara inn í Kringluna.... BÍDDU ER EKKI KREPPA Á ÍSLANDI????? ég bara spyr eða er ég bara að misskilja þetta svona svakalega... Það sást allavega ekki á fólki í Kringlunni að það væri KREPPA.... jeminn eini... þetta var rrruuuussssssssaaaaaalegt!!! ALLSTAÐAR fólk, biðröð uðð að Orkunni til að fá bílastæði svo kom maður inn og ekki tók betra við þar! maður komst varla áfram nema bara að labba með straumnum og reyna svo að brjótast út úr honum til að komast inn í búðir. Þetta var algjör bilurog svo ef maður gerðist svo vitlaus að vilja máta e-ð!!! úff þá var það bara klukkutíma röð til að komast í mátunarklefann... ef svo illa vildi til að þér líkaði það sem þú mátaðirþá var það önnur klukkutíma röð til að fá afgreiðslu á kassa. JEMINN þetta geri ég ekki aftur það er held ég bara alveg á hreinu. HEHE jú örugglega samt... er að fara aftur suður á fimmtudaginn kíki þá örugglega inn í eins og eina búð eða svo... En í dag var ég allavega mjög snögg að fara með stígvélin mín í viðgerð bara í dag og koma mér svo út afturþar sem maður fékk hér um bil innilokunarkennd af mannfjöldanum. Já þetta var rosalegt, ég sem er alin upp í Reykjavík og kippi mér upp við þetta... já ég veit ekki hehe. Sem betur fer sá ég ekkert sem mig langaði í, og ekkert sem mig langaði að máta... þannig ég þurfti ekki að bíða í nenni biðröð nein staðar en jæja komið nóg af bulli í bili.... segi ykkur kannski meira síðar (loga samt engu ) hehe hastala vista baby
p.s muna FJÖLMENNUM Á ÞRETTÁNDAGLEÐINA 2009 6.jan klukkan 18. frá pakkhúsinu
04. janúar 2009 klukkan 02:08
Sigurbjörg Þórunn 1 athugasemd
jebb 3 dagurinn í röð... hehe en þetta verður mjög stutt... rakst á þetta myndband.... og vá ég held að þetta sé nú bara versti vítaspyrnudómur sem ég hef nokkurn tíma séð... ég spyr nú bara hvernig er þetta hægt???? jahérna hér... en þeir sem hafa áhuga á fótbolta endilega skoðið og þið sem ekki hafið áhuga á honum megið alveg skoða líka.... þið sjáið allavega vega hvernig á EKKI að dæma vítaspyrnu heheheh hastala vista
02. desember 2008 klukkan 23:29
Sigurbjörg Þórunn 4 athugasemdir
svo tíbíst um leið og maður byrjar í prófum þá fer maður að blogga... ótrúlegt.... en ég er samt búin að vera svo rosa dugleg í dag að það verður bara tekið kósýkvöld á þetta það sem eftir er kvöldsins.... langar reyndar geðveikt að vera í fótbolta núna en þar sem ég er alltaf svo ómótstæðilega heppin þá er ég þar ekki.... förum ekki nánar út í það en já svona er þetta bara sumir eru heppnari en aðrir þannig er það bara og heppnin er ekki búin að elta mig þetta árið hahahahha... annars er bara allt við það sama og í gær sko bara læra og læra og læra meira vinna þess á milli og borða og sofa.. þannig þetta er rosa mikið fjör þessa dagana. svo yndislegt samstaða og sveitarfélögin bara að semja og við að fá launahækkun og svo er verið að tala um að það sé kreppa ISSSSSS eintóm sæla hjá mér heheheheh
en jæja hætt að bulla í bili.
hastala vista
01. desember 2008 klukkan 21:09
Sigurbjörg Þórunn Engin athugasemd
ég fæ vonandi bráðum verðlaunin lélegasti bloggarinn... hehe er alltaf að reyna að bæta mig í þessu en það bara gengur ekki neitt.... skal bara alveg viðurkenna að ég bara nenni þessu ekki! og þar að auki er aldrei neitt merkilegt að gerast hjá mér það einá sem ég ætti að vera gera núna er að læra þar sem ég er að fara í próf á fimmtudaginn... en nei ég nenni frekar að blogga heldur en að læra.. hehehe ég meina ég er búin að taka samræmtpróf í íslensku og einhverja 6 eða 7 áfanga í FB í íslensku þannig til hvers í ands..... þarf ég að fara einu sinni enn í íslensku próf?? og það í málfræði orðflokkum og einhverju öðru eins rugli.... já okey ég á að vera búin að læra þetta allt líka ENN..... það situr alveg voðalega lítið eftir... skal bara alveg viðurkenna það... þetta er bara alveg hundleiðinlegt og þannig er það bara!! var að skoða gamalt próf núna áðan og einn liðurinn á því er svona..... :
Skrifið setningu sem samanstendur af eftirfarandi setningarliðum í þessari röð: a) Frumlag-umsögn-sagnfylling b)Umsögn- frumlag- andlag- forsetningarliður
já endilega ef þið eruð góð í íslensku þá megið þið alveg hjálpa mér með þennan lið
annars er lítið að frétta... Bjössi bróðir og Elli komu í mat til mín í gær, eru að vinna í rafmagninu í húsinu hjá Hrannari... það var voða gaman að hitta þá.... að vera með þeim báðum minnir mann alltaf a bílaleikina í æsku með þeim.... þegar ég kom til þeirra "æji má ég vera með??? gerið þið það!!!" og svarið sem maður fékk "jájá en þú ert löggan!!!!" hehehe.... og ef manni fannst þeir e-ð vera að brjóta lögin þá var það alveg bókað mál að þeim fannst það sko ekki hehehe... þetta er svona eins og þegar krakkar eru í hlutverkaleik og einhver biður um að fá að vera með sem þau vilja ekki alveg hafa með... þá er alltaf best að segja "já en þú mátt vera hundurinn" og svo er hundurinn settur út í garð til að viðra sig er það bara meðan leikurinn er í gangi hehehe fyndið svona þegar maður fer að pæla í þessu hvað þau eru snjöll þessi grey... en já það var rosa gaman að fá þá í heimsókn og var MIKIÐ spjallað um alls konar hluti.... takk fyrir heimsóknina strákar!!
svo bara bíður maður núna eftir því að jólin komi því á milli jóla og nýárs stefni ég á að taka inn hestana... úff get varla beðið... það er reyndar endalaust verið að bjóða mér hesthús pláss núna en ég er komin með og verð bara á mínu stað í Aðalbóli, þó svo að mörg boðin hafi verið mjög góð.. þá ætla ég að vera þarna með vinum mínum.... Guðrún og Alda ég get bara ekki slitið mig frá ykkur get ekki beðið eftir því að fara að ríða út með ykkur!!
en jæja ætli það sé ekki best að fara að læra e-ð heyrumst síðar lofa engu hvenar það verður en það kemur að því einhvern tíman HASTALA VISTA
30. nóvember 2008 klukkan 14:38
Sigurbjörg Þórunn 2 athugasemdir
úffff... vá hvað ég er léleg í þessu..... en samt þetta segir mér samt að það sé búið að vera svo brjálað að gera hjá mér að ég hef bara hreinlega ekki haft tíma til þess að skrifa hérna inn höldum allavegana í þá von hehe annars er búið að vera svolítið mikið að gerast þennan mánuð.... stóðréttahelgin var náttúrulega bara SNILLD í alla staði.... smölunin skemmtileg að vanda, maturinn í valdarási æði, súpan hjá á litlu-ásgeirsá GEGGJUÐ og partýið á Kolugili snilld.... þannig sama sem snilldar dagur út í gegn!! svo rann stóðréttadagurinn upp og vá hvað veðrið var gott... rosa gaman að sjá hrossin sín aftur hafði sko í nógu að snúast við að reyna að ná honum Amor kallinum.... en það var bara gaman svo bara riðið út að síðu með stóðið og farið heim að gera sig klára fyrir ball. Ballið eigum við e-ð að ræða það eða......??? nei held ekki... múhahahahahahaha gæti orðið svona kommenta súpa eins og hjá Guðrúnu þannig við sleppum því bara.... en þetta var geggjað ball sem maður skemmti sér konunglega á..... en já svo flutti ég náttúrulega um miðjan mánuðinn og vá þetta er svo æðisleg íbúð.... í húsi byggðu 1930og e-ð, á 2 hæðum mátt ekki vera of stór til að vera hérna inni nema þá bara að passa hausinn. Húsgögnin mega heldur ekki vera of stór til að þau komist inn aðeins búin að fá að kynnast því (vona bara að flotti sjónvarpsskáoruinn sem ég var að kaupa komist inn án þess að þurfa að saga hann í sundur) hehe en já þetta er æðislegt hús með mikla sál..... bara geggjað... svo voru uppskeruhátíðirnar um helgina hjá Þyt. Fyrst hjá börnunum á föstudaginn og svo hin í gær kvöldi og vá það var svo gaman....... maturinn rosa góður, slimmi og mjói komu skemmtilega á óvart og stóðu sig mjög vel, skemmti atriðin FRÁBÆR og ballið rosa skemmtilegt dansað mikið og sungið enn meira.. enda dagurinn í dag frekar mikill leti dagur bara... hjálpaði reyndar Guðrúnu að taka til í félagsheimilinu en svo er bara leti líf fyrir framan sjónvarpið undir teppi en já þetta er bara búið að vera skemmtun og meiri skemmtun jæja dagvaktin bíður ekki HASTALA VISTA skal reyna að hafa ekki svona langt þar til næst lofa samt engu
02. nóvember 2008 klukkan 20:40
Sigurbjörg Þórunn 5 athugasemdir
4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum Florida Antalaya- Tyrkland Glasgow Frankfurt
4 netsíður mbl facebook fotbolti.net lhhestar.is
4 matarkyns Kjúklingur, kjúklingur, kjúklingur nei okey hamborgarhryggur steiktar kjötbollur í brúnni sósu mexíkóskur matur
4 óskastaðir akkúrat núna útlönd á hestbaki komin í nýju íbúðina í draumaheimi
4 sem ég klukka Guðrún Ósk Agnes Karen Lind Unnur
jæja náði að klára þetta... og ég veit að ég er ógeðslega leiðinleg að hafa klukkað einhvern annan en svona er þetta bara en jæja stóðréttir í þverárrétt í gær.... og ég skellti mér með Öldu, Betu og Ágústi ríðandi frá Breiðabólstað...... vá það var svo gaman... okey veðrið gat nú alveg verið svolítið betra en þetta bjargaðist alveg... er enn á lífi þannig þá hlýtur þetta nú að hafa verið í lagi eftir réttina riðum við heim að Stóru Borg og var Maddý auðvitað óð í eldhúsinu að elda þegar við komum þangað.... þannig þar var matur og fínerí og svo var bara haldið á Breiðabólstað að ná í bílinn og svo heim... þetta var hreint út sagt frábær dagur í alla staði. Jú og ég kom Bjössa Loksins á Aþenu ohh ég var svo ánægð hefði getað brosað hringinn.... það var bara æði að sjá hann á henni LOKSINS hún var reyndar orðin svolítið lúin eftir daginn þannig hún var kannski ekki alveg upp á sitt best en hann fær að prófa hana aftur við tækifæri óþreytta og svoleiðis svo eru bara 3 dagar í það að ég flytji vá hvað ég er spennt... hehe æji þetta verður bara æðislegt..... svo eru auðvitað bara 5 dagar í STÓÐSMÖLUN!!!! vá hvað verður gaman búin að fá lánaða aðra meri og svo mín í góðu standi þannig það er bara allt eins og það á að vera nú er það bara að bíða og liggja á bæn eftir góðu veðri( æji það er nú kannski ekkert nauðsynlegt maður klæðir sig þá bara betur) en ætli það sé ekki best að koma sér að læra HASTALA VISTA BABY
28. september 2008 klukkan 10:48
Sigurbjörg Þórunn 3 athugasemdir
jebb núna er búið að vera brjálað að gera hjá manni... Loksins laus við gipsið og vá þvílík sæla.... geta notað hendina aftur... úff bara snilld..... annars þá skellti ég mér í göngur á laugardaginn... í fyrsta skiptið fór ríðandi fyrir Helguhvamm (Takk Jóhanna fyrir að spurja mig) þetta var geggjað gaman..... veðrið var reyndar ógeðslegt meðan við vorum að smala eða sérstaklega til að byrja með gjörsamlega ausandi rigning og rok.... úff!!! en þetta gekk allt saman og komast maður heill niður þannig það var fyrir mestu en svo þegar við komum niður var bara geggjað veður... sól og blíða alveg hrein snilld og ekkert annað...... bara gaman... svo var auðvitað riðið heim.... ég og einar riðum eins og vitleysingar til að ná hópnum og skemmtum okkur konunglega..... þegar komið var upp í hesthús skelltum við (ég, Hrannar og Einar) okkur berbakt upp á tún... Ég var auðvitað á Aþenu og hún náttúrulega bara hin ljúfasta gerði ekki neitt.... og aldrei verið riðið berbakt áður... þetta er algjört yndi þessi meri veit ekki hvað ég gerði án hennar takktakk..... svo var auðvitað bara ball um kvöldið og dansað og sungið eins go maður gat... enda röddin eftir því núna.... hehe
smá pæling búin að vera að hugsa undanfarið..... æji þegar allir þessi fellibylir ganga yfir þá hugsar maður hvað við erum heppin að búa á Íslandi... ég meina loksins þegar það er búið að laga til eftir einn þá kemur bara sá næsti og gjör eyðileggur allt aftur.. þetta er svakalegt... það er reyndar eitt sem ég væri til í að sjá.... það er að ég myndi vilja sjá hvernig hús byggt eftir íslenskum staðli myndi standa svona fellibyl... jú sko við höfum séð það við jarðskjálftana sem hafa gengið yfir hér þá jú koma kannski sprungur í gömul hús og svoleiðis en svo kemur jafn sterkur jarðskjálfti einhversstaður úti og þá hrynja húsin eins og spilaborgir... þess vegna væri gaman að sjá hvernig hús byggt eftir íslenskum staðli myndi standa eftir fellibyl.... já ég veit ég er geðveik en ég bara fór allt í einu að pæla í þessu núna um daginn. hehe en jæja nenni ekki meiru í bili þarf víst að fara að læra og svo að klára starfskýrslu æskulýðsnefndarinnar þannig
hastala vista baby
16. september 2008 klukkan 19:00
Sigurbjörg Þórunn 1 athugasemd